Framtíðar fyrrverandi feit... það verður ÉG
06.06.2004 11:04:15 / lena

Gleymdi :(

já, þegar maður er svona þreyttur þá á ég það til að vera pínu gleymin... Ég er ennþá 130kg :( amk er vigtin ekkert að reyna að sannfæra mig um nokkuð annað :( Næsta vika fer vonandi í að vera duglegri við að drekka teið mitt því ég finn að bjúgur er ALLS STAÐAR á mér... örugglega 2-3 kg þar :( ég hef bara alls ekki verið að standa mig í tedrykkju og fæ að kenna á því núna...

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.06.2004 10:59:03 / lena

ÆÆ... ég bara gleymdi þér alveg

Já, barasta gleymdi alveg að kvitta fyrir syndir mínar í síðustu viku :^) Ég gleymdi reyndar líka að segja ykkur frá því sem vel gekk, því það voru alls ekkert allir dagar slæmir ;) Á morgun er komin ný vika og hún verður vonandi betri. Ég er líka orðin óstjórnlega þreytt á alltof mikilli vinnu. Sem betur fer þá get ég aðeins hægt á í næstu viku... GÆS-in ofurþreytta

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.06.2004 09:50:56 / lena

Ný vika

Frábærri helgi er lokið :( og við tekur sama hjakkið og venjulega... Þessi helgi var bara FRÁBÆR nema hvað það varðar að ég gleymdi nú alveg að spá í mataræðið. Enda erfiðara þegar að maður er ekki heima hjá sér. Engin afsökun svo sem :( Þessi vika á eftir að verða erfið, finn það á mér. Martraðar vinna og þá gengur mér alltaf verr :( en ég ætla að reyna, sérstaklega að standast sælgætið. Nái ég því þá er stóru takmarki náð. Því sælgætið er minn versti óvinur :evil:

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.05.2004 08:59:43 / lena

Jæja, það er víst orðið opinbert

hver ég er.... þegar að ég skrifaði á barnalandi faldi ég nafn mitt. Þegar að ég tók þá ákvörðun að færa þetta hingað þá vissi ég ekki að fólk gæti séð nafnið mitt og netfang :( en mér er eiginlega bara sama núna. Það sjá það allir sem mæta mér við hvaða vandamál ég er að stríða. Því er best að viðurkenna þetta bara... Lena heiti ég sem sagt - samt líka GÆS því ég GET, ÆTLA og SKAL !!!

» 5 hafa sagt sína skoðun

28.05.2004 08:20:36 / lena

Gekk ekki vel í gær

Neibb, það gekk barasta ekki neitt! Öll staðfesta og ákveðni fauk útí veður og vind, skil ekki af hverju því hérna var ekkert rok :( Ég er enn 130kg - enda svo sem ekki hægt að ætlast til þess að talan lækki nema að árangurinn verði betri. Ég bíð spennt eftir svolitlu sem ég heyrði af. Núna er að koma á markaðinn alls kyns vörur fyrir þá sem vilja forðast kolvetni. Allt mögulegt skilst mér, ekki bara lowcarb sælgæti. Maður á líka að geta bakað ofl ofl. Ég bíð spennt, ekki spurning því ég veit að kolvetnasnautt virkar. Ég bara get ekki farið á kúrinn beint því að það skilar bara niðurgangi og leiðindum strax á degi tvö :( Mjög slæmt eiginlega því í fyrra léttist ég um 20kg á þessum kúr. Og var bara sátt, mjög sátt. Núna eru þau kíló hérumbil öll komin aftur og fínu buxurnar mínar sem voru orðnar eins og pokar utan á mér eru það alls ekki lengur, ég fylli bara út í þær :( :( æ, ég er bara eitthvað hund ómöguleg í dag. Búin að lesa um góðan árangur hjá fullt af fólki og það skilar engu til mín nema öfund :( vildi óska að það skilaði sér í meiri ákveðni og staðfestu.

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.05.2004 12:42:52 / lena

Víííííí :) :) :)

Óvinur minn í hádeginu reyndist vera Bakarameistarinn :evil: en ég stóðst lyktina og freistinguna... rölti bara inní Krónuna og keypti mér epli og drykkjarjógúrt :lol: Og kjúklingabringur í kvöldmatinn... kannski ég grilli þær bara! eini gallinn við sumarið er grilltíminn og sú óendanlega óhollusta sem getur fylgt því. En það hlýtur að vera hægt að grilla eitthvað gott án þess að það sé óhollt :S Ef þið vitð um eitthvað sniðugt, þá endilega deilið visku ykkar :) GÆS

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.05.2004 15:11:35 / lena

Frábært!

fékk mér alveg ferlega fínan hádegismat... grænmetissælu á Subway. Hefði nú svo sem mátt draga úr hitaeiningunum með því að kaupa bara 6" bát... en þetta var þrælfínt bara :) Er samt andsk... föst með hugann við FJANDANS kókosbollurnar sem eru til heima í skáp :( þær verða bara að geymast fram að næsta nammidegi... verst hvað er langt í hann! GÆS

» 1 hafa sagt sína skoðun